Dásamleg marengsterta með karamellusósu og súkkulaði
Uppskriftin var fengin af:
www.lindaben.is
Marengs (2botnar)
Innihald:
- 6 eggjahvítur
- 3,5 dl sykur
- 2 tsk kornsterkja
- 2 tsk vanilludropar
- 2 tsk hvítt borðedik
- Matarlitur (val)
- 2 stk (60 g hvert) Cloetta Kex
Fylling:
Innihald:
- 300 ml rjómi
- 200 g jarðaber
- 1 – 1½ dl Walkers karamellusósa sjá uppskrift hér
- 2 stk (60 g hvert) Cloetta Kex
Marengs
Aðferð:
- Stillið ofninn á 120ºC og blástur.
- Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina og notið þeytarann.
- Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
- Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 tsk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
- Blandið saman vanilludropum og hvíta borðedikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
- Teikniði tvo 22 cm hringi á sitthvoran smjörpappírinn, snúið smjörpappírnum við (svo pennastrikið sé niður) festiði smjörpappírinn á ofnplötu með því að setja örlítið deig undir hornin á smjörpappírnum og klessið við ofnplötuna.
- Skiptið deiginu í tvö hluta, hafið annan hlutan 2/3 og hinn hlutann 1/3.
- Brjótið Cloetta kexið í litla bita og blandið saman við stærri marengshlutann. Setjið matarlit í deigið og hrærið lítillega saman svo hann verði tvílitur. Skiptið svo því degi aftur í 2 hluta þannig að annar hlutinn sé 2/3 af deiginu og hinn sé 1/3. Smyrjið báðum hlutunum á smjörpappírana (hinn er þá þynnri)
- Setjið deigið með engu kexi ofan í þrjá sprautupoka, setjið matarlit í deigið fyrst og hrærið lítillega saman, skiljið eftir einn hlutann ólitaðan. Ég notaði hringlaga stúta í mismunandi stærðum. Ath. að það er hægt að nota einn sprautupoka og einn hringlaga stút líka, klára þá eitt degið og setja svo næsta aftur ofan í pokann.
- Sprautið toppum út um allt og frekar óreglulega um allan botninn, skiptist á að nota mismunandi litað deig. Til að gera topp sprautar maður stórri doppu af deigi og dregur svo hratt upp til að myndist toppur.
- Bakið í 60 mín, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökurnar kólna með ofninum. Takið þær út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.
Fylling
Aðferð:
- Þeytið rjómann.
- Skerið jarðaberið smátt niður í teninga og blandið út í rjómann.
- Setjið 1 tsk af rjóma á kökudiskinn og svo neðri marengsinn á diskinn, festið hann niður.
- Setjið rjómann á neðri marengsinn og jafnið vel úr honum.
- Hellið karamellunni yfir rjómann, helst þannig að hann er allur þakinn karamellu.
- Setjið efri marengsinn á, þrýsið honum létt niður svo hann festist.
Recent Posts