Hnetumolar
Uppskriftin var fengin af:
www.gotteri.is
Hér eru á ferðinni poppandi góðir hnetumolar með súkkulaði….Mmmmm
Innihald:
- 80 gr Dry Roasted Macadamia Nuts frá Nutisal
- 140 gr Dry Roasted Cashew Nuts frá Nutisal
- 80 gr Dry Roasted Peanuts frá Nutisal
- 200 gr Polly súkkulaðikúlur
- 50 gr Maxi popp
- 400 gr suðusúkkulaði
Aðferð:
- Saxið allar hnetur gróft niður.
- Skerið Polly súkkulaðikúlur til helminga.
- Myljið Maxi popp gróft með lófunum.
- Blandið öllu saman í stóra skál.
- Bræðið suðusúkkulaði og hellið yfir hnetublönduna og blandið vel saman.
- Klæðið kökuform (um 30 x 20 cm) með bökunarpappír og hellið hnetublöndunni þar í og þjappið vel.
- Kælið eða frystið þar til súkkulaðið harðnar og skerið/brjótið niður í smærri mola.

Nýjustu uppskriftirnar